1 Leikir með meistaraflokkum og mörk talið í aðaldeild liðsins og síðast uppfært nóv. 2020.
Sara Björk Gunnarsdóttir (f. 29. september1990) er íslenskknattspyrnukona. Hún leikur með Juventus á Ítalíu. Á ferli sínum hefur Sara einnig spilað fyrir Hauka, Breiðablik, FC Rosengård, FC Malmö og Lyon. Sara hefur verið í A landsliði kvenna frá 2007 og spilaði með landsliðinu á EM 2007, 2009 og 2013. Sara var valin íþróttamaður ársins árið 2018 og 2020.
Ferill með félagsliðum
Sara hóf knattspyrnuiðkun árið 1996 með Haukum, eftir tólf ár hjá uppeldisfélaginu gekk hún til liðs við Breiðablik árið 2008. Eftir þrjú mögur ár hjá Breiðabliki gekk hún til liðs við FC Malmö fyrir tímabilið 2011. Á sínu fyrsta tímabili í Svíþjóð kom hún að 12 mörkum og hjálpaði Malmö að vinna Damallsvenskuna. Fimm árum og þremur meistaratitlum síðar, árið 2016, tilkynnti Sara að hún hyggðist ekki framlengja samning sinn við Malmö, fljótlega tilkynnti FC Wolfsburg að hún myndi ganga til liðs við liðið fyrir tímabilið 2016-17. Hjá Wolfsburg hefur Sara sankað að sér verðlaunagripum, m.a. fjórum Þýskalandsmeistaratitlum og þremur bikartitlum.
Árið 2020 hélt Sara til Olympique Lyonnais í Frakklandi. Hún skoraði gegn sínu fyrrum félagi, Wolfsburg, í úrslitum Meistaradeildarinnar þegar Lyon vann 3-1.
Landsliðsferill
Í ágúst 2007 valdi Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þáverandi landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins, Söru í landsliðshóp fyrir leik gegn Slóveníu í undankeppni Evrópumótsins 2009. Sara hafði þá nýlega jafnað sig á krossbandaslitum, hún kom inn á fyrir Katrínu Ómarsdóttur á 87. mínútu í sínum fyrsta landsleik, þá aðeins 16 ára gömul.
Árið 2019 tjáði Sara Björk sig, í tengslum við útgáfu á bókinni Óstöðvandi, í fyrsta sinn um erfiðleika í byrjun landsliðsferils síns, en hún varð fyrir barðinu á svæsnum sögusögnum liðsfélaga sinna.