Sæliljur

Sæliljur
Sælilja, Apo Reef, hjá Filipseyjum
Sælilja, Apo Reef, hjá Filipseyjum
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríkið (Animalia)
Fylking: Skrápdýr (Echinodermata)
Undirfylking: Crinozoa
Flokkur: Crinoidea
Miller, 1821
Undirflokkar
Sælilja af tegundinni Jimbacrinus bostocki.

Sæliljur (fræðiheiti: Crinoidea) er flokkur skrápdýra sem lifa í sjónum. Sæliljur geta lifað bæði mjög grunnt, en líka alveg niður á 6 kílómetra dýpi. Sæliljur eru oftast fastar við botninn, en sumar tegundir geta synt um höfin með örmunum.

Um 5000 tegundir af sæliljum hafa fundist í steingervingum frá fyrri tímum, en í dag er talið að um 600 tegundir séu til. Um 80 tegundir eru svokallaðar botnsæliljur sem eru fastar við botninn með stilk, en þessar tegundir eiga það til að lifa dýpra en þær 5400 tegundir sem eru stilkslausar. Fundist hafa allt að 50 tegundir af sæliljum á einu kóralrifi í Kyrrahafi og er þéttleikinn svo mikill að allt að 12 tegundir geta fundist á einum fermetra.

Svo virðist sem sæliljur lifi helst í heitum sjó, en fundist hafa nokkrar tegundir í kaldari sjó eins og við Ísland. Sæliljur fundust í neðansjávarmyndatökuleiðangri Hafrannsóknastofnunar Íslands á rannsóknarskipinu Bjarna Sæmundssyni í lok júní 2012. Leiðangurinn fór fram í Háfadjúpi, kantinum austan við Háfadjúp og í Reynisdjúpi. Þar fundust víða miklar breiður af sæliljum á leirbotni á um 500 metra dýpi.[1]

Líffræði og saga

Sælilja með stilk.

Sæliljur hafa munn á efra yfirborði sem er umkringdur fóðrunarörmum. Þær hafa U-laga maga og endaþarmurinn er við hlið munnopsins. Flestar tegundirnar hafa fleiri en fimm arma. Sæliljur eru oftast fastar með stilk við jörðina þegar þær eru ungar, en losna svo og synda um þegar þær þroskast. Þær nærast með því að grípa fæðu úr sjónum með því að opna arma sína. Þegar armarnir hafa gripið fæðuna þá færist hún með ákveðnu ferli með hjálp slímhúðar sæliljurnar í átt að munninum. Stærð fæðunnar er á bilinu 50–400 µm. Fæðan er margs konar; allt frá kísilþörungum til lirfa hryggleysingja og lítilla krabbadýra.

Armarnir eru einnig mikilvægir fyrir sund stilklausra sælilja. Með því að slaka og spenna vöðva í örmunum geta sæliljur synt. Sæliljur af ættkvíslinni Antedon geta synt með þessum hætti, en vegna þess hve mikillar orku það krefst þá láta flestar sæliljur strauma bera sig um.

Innri líffæri eru nánast aðeins fyrir meltingu og æxlun. Einnig virðist vera mikill massi í kjarnanum sem er notaður til að endurbyggja líkamshluta. Því miður eru allir flokkar sælilja útdauðir nema einn sem heitir Articulata. Af steingervingum að dæma þá virðist útbreiðsla sælilja hafa verið mest á fornlífsöld, en allir nema einn flokkur virðast deyja út á permtímabilinu.

Stærsta sælilja sem fundist hefur, Metacrinus superbus, var 1,5 metri að stærð, en stilklausar sæliljur eru oftast minni. Stærsta stilklausa sæliljan, Helimetra glacialis, var 35 cm að þvermáli. Sæliljur eru annað hvort karlkyns eða kvenkyns. Þær hafa engan sérstakan kynkirtil en framleiða kynfrumur í kynfærum sem finnast í örmum þeirra. Þessi kynfæri rifna að lokum og þá sleppa sæði og egg í sjóinn í kring. Frjóvgað egg klekst og sleppir syndandi lirfu. Lirfan nærist ekki og lifir aðeins í nokkra daga sem slík, en hún þarf að koma sér fyrir á botninum og festa sig. Lirfan umbreytir sér svo í stilkaða sælilju. Sæliljur eru 10-16 mánuði að verða kynþroska.

Árið 2005 fannst stilkuð Sælilja sem togaði sig áfram með örmum sínum og dró stilkinn með sér. Það kom rannsóknarmönnum á óvart að hún gat ferðast allt að 0,6 m/klst með þessum hætti. Líklega hefur stærsta sælilja allra tíma verið Pentacrinites sem er nú útdauð, en stilkurinn á henni gat verið nokkrir metrar að lengd. Stærsti steingervingur sem fundist hefur af Pentacrinites var 40 metra langur.

Sæliljur eiga óvini eins og flest önnur dýr í hafinu. Vegna fjölda arma þá notfæra smærri dýr sér þá til að fela sig fyrir óvinum. Stundum verða sæliljurnar fyrir skaða vegna þess að dýr leita að smærri dýrum inn á milli armanna. Vitað er um níu tegundir sem nærast á sæliljum. Flest þessara dýra lifa á kóralsvæðum. Fiskurinn Balistoides conspicillum er þekktur óvinur sæliljanna, en hann bítur arma af þeim. Einnig Chrysophrys auratus, en hann er eini þekkti fiskurinn sem étur sæliljurnar heilar. Fleiri tegundir eru krabbar og krossfiskar. Sem betur fer fyrir sæliljurnar þá hafa þær ótrúlegan hæfileika til að endurbyggja arma og jafnvel líffæri sem étin hafa verið af óvinum þeirra.

Ættir

Af 625 tegundum sem eru þekktar eru 550 stilklausar. Sæliljur skiptast í 17 ættir:

Hvergi er að finna gögn um efnahagslegt mikilvægi, en mögulega til framtíðarinnar litið er hægt að finna með rannsóknum og nýsköpun eitthvað mikilvægt sem hægt er að vinna verðmæti úr. Engar beinar rannsóknir hafa verið gerðar á sæliljum við Ísland, en þær hafa fundist í neðansjávarmyndatökuleiðangri.

Tilvísanir

  1. „Djúpsjávarlífverur og kóralar í Háfadjúpi“. Hafransóknarstofnunin. Sótt nóvember 2012.

Tenglar