Skrápdýr (fræðiheitiEchinodermata) eru fylking sjávardýra. Skrápdýr finnast á öllu dýpi sjávar frá fjöruborði til djúpsjávar. Innan fylkingarinnar eru um 7000 núlifandi tegundir til dæmis krossfiskar, ígulker, slöngustjörnur, sæbjúgu og sæliljur. Skrápdýr draga nafn sitt af kalkflögum í húð þeirra. Þessar kalkflögur geta myndað samfellda skel eins og hjá ígulkerum eða verið litlar lausar flögur eins og hjá sæbjúgum og þá er líkami þeirra mjúkur.