Sakamoto var fæddur í Kawasaki, yngstur níu systkina. Foreldrar hans voru Hiroshi Sakamoto og Iku Sakamoto en bæði unnu þau á veitingastað. Í menntaskóli hófst söngferill Kyu og hann byrjaði sem söngvari í japönsku hljómsveitinni The Drifters árið 1958.
Þekktasta lag hans, Ue o muite arukō, betur þekkt sem Sukiyaki á vesturlöndum, sló í gegn í Japan og komst í efsta sæti bandaríska vinsældalistans árið 1963. Lagið fór sem stormsveipur um höf og lönd og hið þekkta stef hefur verið áhrifavaldur margra annarra verka í seinni tíð.
Kyu var dugmikill í vinnu fyrir eldri, yngri og fatlaða í Japan. Lag hans Ashita Ga Aru Sa var aðalstef Ólympíuleika fatlaðra sem var haldið í Tókýó árið 1964.
Hann lést í flugslysi í Japan árið 1985 og lét eftir sig eiginkonu og tvær dætur; þær Hanako og Maiko.