Karl 11. (24. nóvember1655 – 5. apríl1697) var Svíakonungur frá 1660 til dauðadags. Hann varð konungur aðeins fimm ára gamall eftir að faðir hans Karl 10. Gústaf lést úr veikindum. Móðir hans Heiðveig Eleonóra af Holstein-Gottorp fór með völdin fyrir hans hönd en hún hafði lítinn áhuga á stjórnmálum og því var stjórn ríkisins í raun í höndum voldugra ráðgjafa í sænska ríkisráðinu á borð við Johan Göransson Gyllenstierna. Framganga hans í Skánarstríðinu gegn Danmörku 1675-1679 aflaði honum aukinna vinsælda og eftir lát Gyllenstierna 1680 tók hann sjálfur meiri þátt í stjórn ríkisins. Eftir stríðið einbeitti hann sér að umbótum í ríkisfjármálunum, í málefnum stjórnkerfisins og hersins. Hann giftist 1680 systur Danakonungs, Úlriku Eleonóru sem ól honum sjö börn, þar á meðal Karl 12. sem tók við völdum eftir lát föður síns.