Kákasusfjöll eru fjallgarður milli Svartahafs og Kaspíahafs. Þau eru venjulega álitin suðausturmörk Evrópu.
Lönd sem hafa fjöllin innan landamæra sinna eru: Rússland, Georgía, Armenía og Azerbaijan.
Fjöllin skiptast í stærri Kákasus-fjöll að norðan og minni Kákasus-fjöll að sunnan en það eru láglendi og dalir á milli þeirra. Elbrus-fjall 5,642 metrar að hæð, er hæsta fjall Evrópu. Berg í fjöllunum má rekja til Krítartímabilsins og Júra-tímabilsins og urðu fjöllin til við árekstur Arabíu-jarðflekans og Evrasíu-jarðflekans. Svæðið er enn virkt jarðskjálftasvæði.
Í hlíðum fjallanna eru skógar og má nefna eik, hlyn, greni, furu og þin. Nordmannsþinur vex til að mynda við fjöllin.