Gilbert Ryle (19. ágúst1900 – 6. október1976) var breskurheimspekingur og einn af fulltrúum þeirrar kynslóðar breskra heimspekinga sem kenndir voru við hversdagsmál og voru undir áhrifum frá Ludwig Wittgenstein. Ryle er einkum þekktur fyrir gagnrýni sína á cartesískatvíhyggju. Hann bjó til hugtakið „draugurinn í vélinni“. Hann kenndi sumar hugmyndir sínar við atferlishyggju (sem ætti ekki að rugla saman við atferlishyggju í sálfræði).