Elías Mar (22. júlí1924 – 23. maí2007) var íslenskurrithöfundur, ljóðskáld og þýðandi. Foreldrar hans voru Elísabet Jónína Benediktsdóttir verkakona og Cæsar Hallbjörnsson Mar kaupmaður. Elías var fæddur og uppalinn í Reykjavík, en móðir hans lést úr bráðaberklum þegar hann var á öðru ári. Elías ólst upp hjá ömmu sinni Guðrúnu Jónsdóttur, en hún lést þegar hann var sautján ára.
Elías Mar var einn fyrsti íslenski rithöfundurinn til að skrifa samtímasögur úr Reykjavík og skáldsagan Vögguvísa er einatt talin fyrsta unglingasaga sem skrifuð hefur verið á íslensku. Einnig hefur því verið haldið fram að í skáldsögunni Man eg þig löngum komi í fyrsta skipti í íslenskum bókmenntum fram samkynhneigð sögupersóna. Sögur Elíasar hafa verið þýddar á eistnesku, esperantó, færeysku, norsku og þýsku.
Elías Mar starfaði lengst af sem prófarkalesari á Þjóðviljanum.
Verk
Skáldsögur
Eftir örstuttan leik, 1946
Man eg þig löngum, 1949
Vögguvísa, 1950 (gefin út í Þýskalandi árið 1958 undir nafninu Chibaba, chibaba: Bruchstück eines Abenteuers)
Sóleyjarsaga, 1954 og 1959
Smásögur
„Gamalt fólk og nýtt“, 1950
„Saman lagt spott og speki“, sérprentuð smásaga, 1960