David Devaney
|
Upplýsingar
|
Fullt nafn
|
David Allen Devaney
|
Fæðingardagur
|
30. maí 1955 (1955-05-30) (69 ára)
|
Fæðingarstaður
|
Reykjavík, Ísland
|
Meistaraflokksferill1
|
Ár
|
Lið
|
1972–1974
|
Njarðvík
|
1 Meistaraflokksferill síðast uppfærður 24. júlí 2018.
|
David Allen Devaney (fæddur 30. maí 1955 í Reykjavík) er íslensk-bandarískur fyrrum körfuknattleiksmaður.
Ferill
David lék í efstu deild karla með Njarðvík tímabilið 1972–1973 og var meðal bestu manna deildarinnar. Í mars 1973 skoraði hann 49 stig á móti Þór Akureyri.[1] Hann varð þriðji hæstur í heildarstigum í deildinni með 280 stig, á eftir Þóri Magnússyni (306 stig) og Bjarna Gunnari Sveinssyni (285 stig). David var þó með hæsta meðalskorið í deildinni, 31,1 stig, en sökum meiðsla spilaði hann í einungis 9 af 14 leikjum Njarðvíkur.[2] Hann leiddi deildina í vítanýtinguna, en hann setti niður 81,8% af vítaskotum sínum.[3][4]
8. september 1973 lék hann með Njarðvík í 72–86 tapi þeirra á móti KR í Bikarkeppni KKÍ en eftir það hélt hann til Bandaríkjana í nám samhliða því að spila með háskólaliði í Flórída.[5] Hann lék á ný með Njarðvík í janúar 1974 er hann var staddur á landinu í leyfi. Þann 5. janúar tryggði hann Njarðvík 2 stiga sigur á Íþróttafélagi Stúdenta með tveimur vítum þegar 12 sekúndur voru eftir. Alls skoraði hann 30 stig í leiknum.[6][7]
Tölfræði í efstu deild
Tímabil
|
Lið
|
Leikir
|
Stig
|
Stig/leik
|
1973 |
Njarðvík |
9 |
280 |
31,1
|
1974 |
Njarðvík |
1 |
30 |
30,0
|
Samtals |
10 |
310 |
31,0
|
Heimildir