Bandalag jafnaðarmanna

Bandalag jafnaðarmanna var íslenskur stjórnmálaflokkur stofnaður árið 1983 að frumkvæði Vilmundar Gylfasonar. Flokkurinn fékk fjóra þingmenn kosna á þing sama ár, flokkurinn var skammlífur og árið 1986 gengu þrír þingmenn flokksins í Alþýðuflokkinn og sá fjórði í Sjálfstæðisflokkinn. Flokkurinn bauð aftur fram til Alþingis árið 1987 en fékk engan mann kjörinn.[1]

Bandalag jafnaðarmanna var fyrsti flokkurinn til þess að setja réttindi samkynhneigðra á stefnuskrá sína. Guðni Baldursson, þáverandi formaður Samtakanna 78 var á framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi.[2]

Tenglar

Tilvísanir

  1. „Hagstofan“.
  2. Greinin: Að hasla sér völl eftir Þorvald Kristinsson, birt 27. febrúar 2003.