Aron Can[a] (f. 18. nóvember 1999)[7] er íslenskur rappari og tónlistarmaður.[3] Árið 2016 gaf hann út frumraun sína, Þekkir Stráginn, þegar hann var 16 ára. Hann var vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn á Spotify á Íslandi árið 2017. Tónlist hans hefur verið lýst sem tilfinningarappi eða trapp-tónlist með innblæstri frá Drake, Future og Young Thug.[8][9] Meðal þekktra laga eru „Enginn Mórall“, „Fullir vasar“ og „Allt það sem ég var“. Hann er einn af fimm meðlimum strákahljómsveitarinnar IceGuys.
Ævi og ferill
Æska og upphaf ferils
Aron er fæddur og uppalinn í Grafarvogi.[10] Pabbi hans er tyrkneskur veitingahúsarekandi sem rak veitingastaðinn Kebabhúsið á Austurstræti.[10] Aron starfaði á Kebabhúsinu þegar hann varð frægur.[11] Sem barn breikdansaði hann í einum þætti af Kastljósi á RÚV.[12] Hann kom í fyrsta skiptið fram opinberlega í undankeppni Samfés í Víkurskóla með frumsömdu lagi.[9] Hann vann keppnina og keppti í kjölfarið á Söngkeppni Samfés árið 2014.[13]
2016: Þekkir Stráginn
Þann 1. maí 2016 gaf hann út fyrstu stuttskífuna sína, Þekkir Stráginn, á eigin vefsíðu sem hrundi tímabundið vegna eftirspurnar.[14] Á stuttskífunni er lagið „Enginn Mórall“ sem varð fljótt vinsælt.[15][16][17] Aron kom fram á mörgum framhaldsskólaböllum í kjölfarið.[18] Þann 28. júlí 2016 kom út lagið „Silfurskotta“ frá Emmsjé Gauta sem Aron syngur inn á.[19][20] Í september 2016 gaf hann út lagið „Lítur vel út“ sem var aðallag kvikmyndarinnar Eiðurinn eftir Baltasar Kormák sem kom út í september 2016.[10] Á árinu kom hann fram á ýmsum tónlistarhátíðum eins og Secret Solstice og Iceland Airwaves.[21][22] Á íslensku tónlistarverðlaununum 2016 hlaut Aron þrjár tilnefningar, þar á meðal sem bjartasta vonin.[23]
2017–2018: ÍNÓTT og Trúpíter
Þann 13. mars 2017 kom út lagið „Fullir vasar“ sem varð fljótt vinsælt.[24] Í kjölfarið kom út fyrsta breiðskífa hans, ÍNÓTT, þann 19. apríl 2017.[16] Hann kom aftur fram á Secret Solstice og Iceland Airwaves auk þess að koma fram á Sónar.[25][26][27] Hann kom fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2017.[28] Aron var vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn á Spotify á Íslandi árið 2017 og átti sömuleiðis vinsælasta íslenska lagið, „Fullir vasar“ á streymisveitunni.[29][30]
Í ársbyrjun 2018 samdi hann við útgáfufyrirtækið Sony Music.[5] Þann 25. maí gaf Aron Can út sína aðra breiðskífu, Trúpíter.[31] Hún fór beint í efsta sæti vinsældalista.[32] Um sumarið kom hann fram á tónlistarhátíðinni North Of í Harstad í Noregi.[33][34] Aron kom fram þriðja árið í röð á Secret Solstice.[35] Þann 22. september 2018 kom út lagið „Eina sem ég vil“ sem hann gerði með ClubDub.[36]
2019–í dag: ANDI, LÍF, HJARTA, SÁL og IceGuys
Þann 5. júlí 2019 gaf hann út lagið „Allt það sem ég var“.[12] Þann 25. október 2019 kom út lagið „Hingað þangað“ sem hann og Friðrik Dór gerðu saman.[37] Aron var ekki bókaður fyrir Secret Solstice hátíðina 2019, en will.i.am bauð honum upp á svið til að koma fram með hljómsveitinni sinni Black Eyed Peas.[38]
Þann 30. apríl 2021 gaf hann út lagið „Flýg upp“ sem var á þriðju breiðskífunni hans ANDI, LÍF, HJARTA, SÁL sem kom út 25. júní sama ár.[39] Platan hafði verið í vinnslu í rúm tvö ár.[40] Til að kynna plötuna kom hann meðal annars fram á Tónaflóði í Hörpu og í sjónvarpsþættinum Heima með Helga á Stöð 2.[41][42] Aron kom fram í lokalagi Áramótaskaupsins 2022, „Búið og bless“.[43] Árið 2023 gekkst hann til liðs við strákahljómsveitinna IceGuys.[44]
Viðurkenningar
Aron var tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2017 fyrir rappplötu ársins, rapplag ársins, og sem bjartasta vonin.[45] Það ár vann lagið „Silfurskotta“ sem Emmsjé Gauti tók með Aroni Can.[23][46] Hann var aftur tilnefndur árið 2018 fyrir rappplötu ársins og rapplag ársins.[47] Tónlistarmyndbandið við lagið „Aldrei heim“ af Trúpíter var valið sem myndband ársins á Hlustunarverðlaununum 2019.[48] Árið 2022 hlaut hann tvær tilnefningar á íslensku tónlistarverðlaununum fyrir rappplötu ársins og tónlistarmyndband ársins.[46] Sama ár vann hann tvenn verðlaun auk tveggja tilnefninga á hlustendaverðlaununum.[49]