Annálar greina frá því að Ketill nokkur kurt hafi vegið mann einn, er Jón hét og síðan komist i kirkju á Strönd í Selvogi, „og gerði þar óspektir, og var fyrir því tekinn úr kirkjunni, og hálshöggvinn“.
Guðmundur ábóti á Þingeyrum lét af ábótastarfi, sem hann hafði gegnt í um 30 ár, og gerðist munkur á Munkaþverá.
Kaupskip, smíðað úr leifum tveggja skipa sem farist höfðu við Eyrarbakka, siglir þaðan til Noregs.
Skip frá Þrándheimi fórst við Voga og allir fórust nema fimm sem björguðust á báti.