19. október - Játvarður 3. Englandskonungur náði sjálfur undir sig stjórnartaumunum og lét hengja Roger Mortimer, elskhuga móður sinnar, Ísabellu drottningar, sem hafði stýrt ríkinu um þriggja ára skeið, og gera eignir hans upptækar.
Serbar unnu sigur á Búlgörum í orrustunni Við Velbuzhd og héldu áfram sókn sinni inn í Makedóníu.
Alfons 11. Kastilíukonungur bannaði öllum hirðmönnum sem gerðu sig seka um að borða hvítlauk eða lauk að láta sjá sig við hirðina eða yrða á aðra hirðmenn í fjórar vikur á eftir.