Íþróttafélagið Draupnir
Íþróttafélagið Draupnir var stofnað þann 8. október 2008. Stofnendur þess voru þeir Jón Stefán Jónsson, Aðalbjörn Hannesson og Egill Ármann Kristinsson. Jón Stefán, sem þá var starfandi knattspyrnuþjálfari hjá Þór og Egill og Aðalbjörn sem þá voru starfandi hjá KA ákváðu að stofna saman félag sem þeir vildu að yrði til staðar sem litla liðið í knattspyrnu á Akureyri. Árið 2011 dró félagið sig út úr keppnum í 3. deild karla og kvenna og með því lagðist knattspyrnuiðkun af hjá félaginu.
Á vordögum 2012 var ákveðið að stofna júdódeild undir merkjum Draupnis.
30. maí 2012 boðaði aðalstjórn KA til félagsfundar í KA-heimilinu. Þar var að starfsemi Júdódeildar KA leggist af og iðkendur deildarinnar æfi og keppi undir merkjum Draupnis frá þeim degi.
2. nóvember 2012 samþykkti Stjórn ÍBA á stjórnarfundinum flutninga á starfsemi Draupnis frá KA heimilinu í húsnæði Þrekhallarinnar í Íþróttahöllinni (sem Golfklúbbur Akureyrar notaði áður). Samþykkið var með þeim fyrirvörum að breytingin hafi ekki aukinn kostnað í för með sér fyrir Bandalagið og að séð sé til þess að aðstaðan, fyrir áframhaldandi starfsemi á báðum stöðum, verði viðunandi eftir flutninginn.
15. nóvember var eftirfarandi bókun gerð hjá Íþróttaráði Akureyrar.
:2012110061 - Æfingaraðstaða Íþróttafélagsins Draupnis :Erindi dags. 2. nóvember 2012 frá Íþróttabandalagi Akureyrar varðandi æfingaraðstöðu Íþróttafélagsins Draupnis. Jón Óðinn Waage og Inga Björk Harðardóttir frá Draupni, Sævar Pétursson frá KA og Haukur Valtýsson frá ÍBA sátu fundinn undir þessum lið. :Íþróttaráð veitir Íþróttafélaginu Draupni heimild til að flytja og nota júdódýnur og fjarðurgólf sem nú er í júdósal KA heimilisins í bráðabirgðaraðstöðu við Skólastíg 4, 600 Akureyri. Íþróttaráð vekur athygli á því að sá búnaður sem verður færður úr júdósal KA heimilisins er og verður áfram eign Akureyrarbæjar og í umsjón íþróttaráðs þegar leigutíma er lokið í bráðabirgðaraðstöðunni.
Stjórnir Draupnis
Information related to Íþróttafélagið Draupnir |