Árni Þór Sigurðsson (f. 1960 í Reykjavík) er íslenskursendiherra og fyrrum alþingismaður. Árni Þór lauk stúdentsprófi við Menntaskólann í Hamrahlíð 1979 og cand.mag. prófi í hagfræði og málvísindum frá Oslóarháskóla 1986. Hann stundaði framhaldsnám í slavneskum málum við háskólana í Stokkhólmi og Moskvu. Auk þess hefur Árni Þór stundað nám í ensku við King‘s College í Bournemouth á Englandi, í rússnesku við Extra Class í Pétursborg í Rússlandi og í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Hann lauk meistaranámi í alþjóðasamskiptum[1] frá Háskóla Íslands árið 2015.
Árni Þór ólst upp í Reykjavík. Foreldrar hans voru Sigurður Kristófer Árnason skipstjóri og Þorbjörg Friðriksdóttir hjúkrunarkennari (bæði látin). Eiginkona Árna Þórs er Sigurbjörg Þorsteinsdóttir ónæmisfræðingur og eiga þau þrjú börn.
Störf
Árni Þór starfaði sem leiðsögumaður í Rússlandi um tíma, var fréttaritari við Ríkisútvarpið þar í landi og á fréttastofu RÚV. Þá var hann deildarstjóri í samgönguráðuneytinu og ritstjórnarfulltrúi á Þjóðviljanum og Helgarblaðinu. Á árunum 1992-1997 starfaði hann við kjara- og félagsmál hjá Kennarasambandi Íslands.
Í sveitarstjórn
Árni Þór hefur starfað í sveitarstjórnarmálum sem borgarfulltrúi í Reykjavík og stjórnarmaður í Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í Reykjavík hefur hann stýrt málaflokkum eins og hafnamálum, leikskólamálum, skipulagmálum og umhverfis- og samgöngumálum. Þá var hann forseti borgarstjórnar 2002-2005. Árni Þór sat í stjórn Hafnasambands Íslands 1994-2004, þar af sem formaður frá 1997 og í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 1999-2007, meðal annars sem varaformaður. Þá hefur hann reynslu af alþjóðasamstarfi á sviði sveitarstjórnarmála.
Árni Þór sagði af sér þingmennsku sumarið 2014, en skömmu áður hafði verið tilkynnt að hann hefði verið skipaður sendiherra af Gunnari Braga Sveinssyni.[2] Árið 2018 viðurkenndi Gunnar Bragi í einkasamtali sem náðist á upptöku að hafa fyrst og fremst útnefnt Árna Þór í embættið til að draga athygli almennings frá útnefningu Geirs H. Haarde í sendiherraembætti Íslands í Bandaríkjunum.[3]
Árni Þór gegndi starfi sendiherra norðurslóðamála í utanríkisráðuneytinu 2015-2017, sendiherra í Helsinki 2018-2020. sendiherra í Moskvu 2020-2023 og sendiherra í Kaupmannahöfn frá 2023.
Í maí 2024 var Árni Þór skipaður formaður Framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa við Grindavík.