Sjá Inngang að skammtafræði fyrir aðgengilegri umfjöllum um skammtafræði.
Bylgjuhreyfingar rafeindar vetnisfrumeindar.
Skammtafræði [ 1] eða skammtaaflfræði [ 1] er sú grein innan kennilegrar eðlisfræði sem fjallar um eðli öreinda og rafsegulbylgja . Skammtafræðin reis upp úr eðlisfræði 19. aldarinnar þegar eðlisfræðingar voru farnir að fá mæliniðurstöður sem stönguðust á við sígildu eðlisfræði eins og t.d. svarthlutageislun , litróf frumeinda og fleiri mælingar. Kenningar hennar eru grundvöllur ýmissa faga innan eðlis- og efnafræðinnar, svo sem kjarneðlisfræðinnar , öreindafræðinnar og rafsegulfræðinnar .
Helstu frumkvöðlar skammtafræðinnar voru Max Planck , Albert Einstein , Niels Bohr , Werner Heisenberg , Max Bonn , Erwin Schrödinger og fleiri.
Orðsifjar
Skammtafræði fékk nafn sitt frá því að mælistærðir eins og orka eða hverfiþungi geta ekki alltaf tekið hvaða gildi sem[ 2] og nefnist það skömmtun („quantization “ á ensku).[ 3]
Tilvísanir
Tenglar
Tengt efni