Sálin hans Jóns míns (einfaldlega kölluð Sálin) var íslensk hljómsveit úr Reykjavík sem starfaði frá 10. mars 1988 til 20. október 2018 er hún hélt lokatónleika í Hörpu. Einn af stofnendum sveitarinnar, sem lék í upphafi sálartónlist, var Jón Ólafsson og vísar nafn sveitarinnar til þess en jafnframt til íslenskrar þjóðsögu.
Saga
Snemma árs 1988 ákváðu Jón Ólafsson, Rafn Jónsson og Haraldur Þorsteinsson úr Bítlavinafélaginu ásamt Stefáni Hilmarssyni og Guðmundi Jónssyni að stofna nýja hljómsveit[1] Þeir héldu sína fyrstu tónleika í Bíókjallaranum við Lækjargötu þann 10. mars 1988 sem telst það stofndagur hljómsveitarinnar.
Framan af var nokkuð um mannaskipti en skipanin hélst nokkuð óbreytt frá 1999 þó Stefán og Guðmundur væru meðlimir frá byrjun og Friðrik Sturluson og Jens Hansson frá 1989.
Fyrsti smellur hljómsveitarinnar var „Á tjá og tundri“ en meðal vinsælla laga eru m.a. „Undir þínum áhrifum“, „Hjá þér“ og „Okkar nótt“. Sérstakur aðdáendaklúbbur var stofnaður um 2003 og hlaut nafnið Gullna liðið. Á 20 ára afmæli sveitarinnar 2008 voru 1.389 manns skráðir í klúbbinn.
Hljómsveitin ákvað að leggja upp laupana árið 2018 og hélt lokatónleika í Hörpu þann 20. október. Aðspurðir hvort von væri á endurkomu svaraði Guðmundur: „Þetta er ekki gert í einhverju „bríeríi“, þetta er búið að meldast lengi. Þessi hljómsveit var stofnuð til þriggja mánaða en er búin að duga í 30 ár. Og við ákváðum bara að segja þetta gott. Og í staðinn fyrir að „feida“ út ætlum við að taka þetta með glans og fá sem flesta með okkur í endasprettinn.“[2][3]
Meðlimir
Hljómsveitina skipuðu:
Söngur: Stefán Hilmarsson (1988-2018)
Gítar: Guðmundur Jónsson (1988-2018)
Bassi: Friðrik Sturluson (1989-2018)
Hljómborð, rafsaxófónn, og bakrödd: Jens Hansson (1989-2018)