Réttlætisflokkurinn[1][2] (sp. Partido Justicialista eða PJ), gjarnan kallaður Perónistaflokkurinn, er helsti stjórnmálaflokkur Argentínu og stærsti flokkurinn sem kennir sig við perónisma.[3]
Þótt flokkurinn sé enn sá stærsti á þinginu takmarkast völd hans nokkuð þar sem flokkurinn skiptist á milli nokkurra fylkinga. Hluti flokksins aðhyllist popúlískavinstristefnu, svokallaðan kirchnerisma, en annar vængur flokksins er hlynntur hægrisinnuðum og íhaldssömum „sambands-perónisma“.
Hugmyndafræði
Allt frá stofnun sinni hefur Réttlætisflokkurinn verið „breiðfylking“ perónista,[4] sem sameinast í kringum arfleifð Juans Perón forseta og eiginkonu hans, Evu Perón, og efnahagslegan popúlisma þeirra.
Flokkurinn viðhélt sömu stefnumálum eftir tíma herforingjastjórnarinnar sem réð ríkjum í Argentínu frá 1976 til 1983. Á stjórnartíð Perónistaflokksins í á níunda og tíunda áratugnum þróaðist flokkurinn í miðhægriflokk en helsti keppinautur hans, Róttæka borgarabandalagið, varð miðvinstriflokkur.
Frá árinu 2003 hafa vinstrisinnaðir perónistar, hin svokallaða „Sigurfylking“ undir forystu Néstors Kirchner, gert byltingu innan flokksins. Fylkingin kynnti til sögunnar svokallaðan kirchnerisma, sem blandar saman sósíalisma, vinstrisinnaðri þjóðernishyggju og pólitískri róttækni. Kirchner var kjörinn forseti Argentínu árið 2003 og náði um skeið miklum vinsældum. Eftir dauða hans tók eiginkona hans, Cristina Fernández de Kirchner, við forystu Sigurfylkingarinnar, sem er enn mikilvægur hópur innan Réttlætisflokksins.