Nýja-Gínea eða Papúa er eyja fyrir norðan Ástralíu sem varð viðskila við meginland Ástralíu þegar sjávarstaða breyttist þannig að flæddi yfir svæðið sem nú heitir Torressund um 5000 f.Kr. Papúa er önnur stærsta eyja jarðar, aðeins Grænland er stærra. Eyjan er 786.000 km2
að flatarmáli. Nýja-Gínea er skipt eyja og deila má um hvort hún tilheyri Eyjaálfu eða Asíu. Hið sjálfstæða ríki Papúa-Nýja-Gínea er á austurhlutanum en á vesturhlutanum eru héruðin Papúa og Vestur-Irian Jaya sem tilheyra Indónesíu. Á Nýju-Gíneu er hæsta fjall Eyjaálfu (telji maður eyjuna til hennar), Carstenz-pýramídinn (eða Puncak Jaya). Nafngiftin er eignuð spænsk-baskneska landkönnuðinum Yñigo Ortiz de Retez. Orðið 'Gínea' er upprunið í portúgölsku þar sem það var haft yfir svæðin suður af berbalöndunum þar sem svertingjar sem ekki yrkjuðu landið eða stunduðu hirðingsskap bjuggu. Þegar þeir síðan hövðu siglt austur og fundu álíka fólk í álíka loftslagi nefndu þeir þetta svo.