Kristinn Haukur Skarphéðinsson (18. febrúar 1956 - 16. nóvember 2024 ) var dýravistfræðingur og sat yfir fagsviði dýrafræði hjá Náttúrufræðistofnun (Áður Náttúrufræðistofnun Íslands).[ 1] Hann sérhæfði sig í rannsóknum á og verndun hafarnarstofnsins (Haliaeetus albicilla ), og var einn fremsti talsmaður á almannavettvangi fyrir verndun og aðgætni í garð þeirra. Í grein hjá Morgunblaðinu frá 2023 var tekið viðtal við Kristinn Hauk varðandi sérstöðu hafarna á Íslandi þar sem Kristinn nefnir erfðafræðilegan og hegðunarbundinn aðskilnað hins íslenska hafarnarstofns við þann sem finnst á meginlandi Evrópu .[ 2]
Menntun
Kristinn Haukur útskrifaðist úr Menntaskólanum við Hamrahlíð, og að stúdentsprófi loknu hélt í nám við Háskóla Íslands þar sem hann lærði líffræði . Á meðan á þessu námi stóð hóf hann einnig starfsævi sína hjá Náttúrufræðistofnun, starfsævi sem átti eftir að endast í rúma þrjá áratugi. Að bakkalár gráðu sinni lokinni hélt Kristinn erlendis í nám og útskrifaðist með meistarapróf í dýravistfræði frá Wisconsin-háskólanum í Madison í Bandaríkjunum .[ 1] [ 3]
Störf
Kristinn var ötull og öflugur vísindamaður, og vann alla tíð að rannsóknum á dýrum , einna helst á fuglum , og sem hluti af störfum sínum við Náttúrufræðistofnun, í fyrstu undir leiðsögn dr. Finns Guðmundssonar , kom Kristinn Haukur að fjölmörgum rannsóknum og var mikils metinn af samstarfsfólki sínu hvort sem það var á Íslandi eða erlendis.[ 1]
Einkalíf
Foreldrar Kristins voru Kristín Guðmundsdóttir, híbýlafræðingur , og Skarphéðinn Jóhannsson, arkitekt .[ 1]
Kristinn var giftur Unni Steinu Björnsdóttur, lækni . Börn þeirra eru þau Kristín Helga Kristinsdóttir, þroskaþjálfi , og Björn Kristinsson (Bjössi sax), saxófónleikari .[ 1]
Heimildir
↑ 1,0 1,1 1,2 1,3 1,4 „Andlát: Kristinn Haukur Skarphéðinsson“ . Morgunblaðið. 11 2024. Sótt 11 2024 .
↑ Mist Þ. Grönvold (11 2024). „Haga sér eins og kóngar í ríki sínu“ . Morgunblaðið. Sótt 11 2024 .
↑ „Kristinn Haukur Skarphéðinsson látinn“ . Náttúrufræðistofnun Íslands. 11 2024. Sótt 11 2024 .
Tenglar