Kauphöllin í London eða LSE (LSE: LSE, enska: London Stock Exchange) er bresk kauphöll staðsett í London á Bretlandi. Hún var stofnuð 1801 og er ein stærsta kauphöll heims. Mörg erlend fyrirtæki eru skráð í kauphöllina.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru við Paternoster Square nærri Pálskirkjunni í London.