Javier Gerardo Milei (f. 22. október 1970) er argentínskur hagfræðingur og stjórnmálamaður sem er núverandi forseti Argentínu. Milei er frjálshyggjumaður og er talinn utangarðsmaður í argentínskum stjórnmálum. Hann náði kjöri í forsetakosningum Argentínu þann 19. nóvember 2023 með fyrirheitum um róttækar stefnubreytingar í anda frjálshyggju, meðal annars um að láta leggja niður seðlabanka landsins og taka upp Bandaríkjadal í stað argentínska pesans. Milei er gjarnan borinn saman við popúlíska hægrileiðtoga í öðrum löndum á borð við Donald Trump og Jair Bolsonaro.
Æviágrip
Javier Milei er fæddur í Búenos Aíres og er af ungverskum ættum.[1] Milei segir æsku sína hafa litast af stirðu sambandi hans við föður sinn. Hann var á árum áður meðlimur í hljómsveit sem spilaði lög Rolling Stones og spilaði fótbolta sem markvörður. Hann hætti í fótbolta á níunda áratugnum og hóf nám í hagfræði. Milei vann lengi sem yfirhagfræðingur Corporación America, eins stærsta fyrirtækis Argentínu, en hætti störfum þar þegar hann var kjörinn á argentíska þingið árið 2021. Milei stofnaði stjórnmálabandalag undir nafninu Frelsið í forgrunni (sp. La Libertad Avanza).[2]
Milei vakti þjóðarathygli í argentínsku sjónvarpi með óvæginni gagnrýni sinni á stjórn perónistannaAlberto Fernández forseta og Cristinu Fernández de Kirchner varaforseta. Á kjörtímabili þeirra hafði verðbólga ágerst mjög í landinu og stór hluti landsmanna farið undir fátæktarmörk.[1]
Milei gaf kost á sér í forsetakosningum Argentínu árið 2023 og náði fljótt miklu fylgi. Í kosningabaráttunni lofaði Milei ýmsum róttækum stefnubreytingum, meðal annars þeirri að láta leggja niður argentínska seðlabankann, sem hann sagði bera mikla ábyrgð á verðbólgunni vegna peningaprentunar. Milei lofaði því jafnframt að stjórn hans myndi taka upp Bandaríkjadal sem gjaldmiðil í Argentínu og láta argentínska herinn taka yfir rekstur fangelsa.[3]
Milei lenti í öðru sæti í fyrri umferð forsetakosninganna þann 22. október 2023 með um 30% atkvæða.[4] Í seinni umferð kosninganna þann 19. nóvember vann Milei hins vegar afgerandi sigur og hlaut 56 prósent atkvæða en andstæðingur hans, sitjandi efnahagsmálaráðherrann Sergio Massa, 44 prósent.[5]
Milei tók við embætti forseta þann 10. desember 2023 og sagði Argentínumönnum að búa sig undir „lostmeðferð“ og aukið aðhald í ríkisútgjöldum.[6]
Stjórnmálaskoðanir
Milei lýsir sjálfum sér sem stjórnleysiskapítalista.[7] Hann er andvígur því að kynfræðsla sé kennd í skólum og segir hana vera lið í ráðabruggi marxista til að gera út af við hefðbundin fjölskyldumynstur. Hann er alfarið mótfallinn því að þungunarrof séu leyfð og hafnar því að loftslagsbreytingar séu af manna völdum. Milei er þeirrar skoðunar að fólk ætti að mega selja líffæri sín ef það vill gera það.[2]
Einkahagir
Milei býr í Búenos Aíres með fimm mastiff-hundum sem hann nefndi eftir hagfræðingum. Einn hundur hans heitir eftir frjálshyggjuhagfræðingnum Milton Friedman.[1] Milei hefur látið klóna annan hund sinn, sem lést árið 2017, fjórum sinum.[2]
Milei hefur tjáð sig frjálslega um kynlíf sitt á opinberum vettvangi. Meðal annars segist hann vera sérfræðingur í tantra-kynlífi og hafa oft tekið þátt í hópkynlífsathöfnum.[2] Mikið hefur verið gert úr piparsveinslíferni Milei í argentínskum fjölmiðlum, þar sem hann hefur mikið tjáð sig um frjálsar ástir.[1]