1 Leikir með meistaraflokkum og mörk talið í aðaldeild liðsins og síðast uppfært júlí 2022.
2 Landsliðsleikir og mörk uppfærð ág. 2020.
Hörður Björgvin Magnússon (fæddur 11. febrúar 1993) er íslenskur knattspyrnumaður sem spilar með gríska félaginu Panathinaikos. Hörður er varnarmaður á miðju eða á vinstri væng.
Félagaferill
Hörður hóf ferilinn með Fram en fór árið 2011 til ungmennaliðs Juventus. Árin 2014-2016 var hann í láni til Serie B deildarliðsins Spezia Calcio og Serie A liðsins A.C. Cesena. Árið 2016 fór Hörður í ensku meistaradeildina til Bristol City og skrifaði undir 3 ára samning. Þvínæst hélt hann til CSKA Moskvu.
Íslenska landsliðið
Hörður hefur spilað með A-landsliðinu frá 2014. Hann var valinn í hóp landsliðs Íslands í Evrópukeppninni í Frakklandi árið 2016 en hann var á varamannabekknum út mótið. Hörður skoraði sitt fyrsta landsliðsmark úr aukaspyrnu í vináttulandsleik á móti Írlandi þann 28. mars árið 2017. Hörður skoraði sigurmarkið í leik Íslands og Króatíu 11. júní 2017 á Laugardalsvelli. Hann var valinn í hópinn fyrir HM 2018 í Rússlandi.