Hryggsúlan er einn af mikilvægustu hlutum ásgrindarinnar í hryggdýrum. Hún heldur líkamanum uppi og ver mænuna.
Hryggsúla mannsins
Í hryggsúlu mannsins eru 24 liðir (7 hálsliðir, 12 hryggjarliðir, 5 lendaliðir), og auk þess spjaldbeinið og rófubeinið, sem hvort um sig eru samvaxnir liðir.
Liðir hryggjarins, hryggjarliðirnir, eru 32-33, séu samvaxnir liðir spjaldbeins og rófubeins taldir með.
Latneskt heiti beins/beina |
Íslenskt heiti beins/beina |
Auðkenni beins/beina |
Stutt lýsing |
Hlutverk
|
|
Atlas |
Banakringla |
C1 |
|
Banakringlan er efsti hálsliðurinn, myndar lið með hnakkahnúum og gefur svigrúm tl að geta kinkað kolli
|
Axis |
Standliður |
C2 |
Standliður er renniflötur fyrir snúning banakringlu og höfuðkúpu, hann gerir mönnum kleift að hrista höfuðið |
Standliðurinn er næst-efsti hálsliðurinn
|
Vertebrae cervicales inferior |
Neðri hálsliðir |
C3-C7 |
|
|
Vertebrae thoracicae |
Brjóstliðir |
T1-T12 |
Þeir hafa liðfleti fyrir rifbeinin |
|
Vertebrae lumbales |
Lendaliðir |
L1-L5 |
Stórir og þunglamalegir hryggjarliðir |
Styðja við líkamsþungann, sveigjanleiki í búknum er sérlega háður lendaliðum
|
Os sacrum |
Spjaldbein |
Ekkert |
Fimm aðskildir hryggjarliðir hjá börnum, þeir renna saman í fyllingu lengdarvaxtar |
Ath: Tilheyrir mjaðmagrindinni
|
Coccyx |
Rófubein |
Ekkert |
Í börnum eru þetta 3-5 aðskildir rófuliðir, hjá fullvöxnu fólki hafa þeir runnið saman |
|