Í landi Hrafnagils hefur nú byggst samnefnt þorp þar sem 270 bjuggu í desember 2019. Þar er Hrafnagilsskóli, grunnskóli Eyjafjarðarsveitar, og félagsheimili. Jarðhiti er á staðnum og er notaður til að hita upp nokkur gróðurhús en einnig eru þar borholur á vegum Norðurorku sem tengjast hitaveitunni á Akureyri.