Hinsegin dagar (enska: Reykjavik Pride) er hinsegin menningar-, mannréttinda- og margbreytileikahátíð sem haldin hefur verið í Reykjavík árlega frá árinu 1999.
Sagan
Fyrstu hinsegin hátíðahöldin í Reykjavík, Hinsegin helgi, voru haldin árið 1999 með dagskrá á Ingólfstorgi, af Samtökunum '78. Þangað komu um 1.500 gestir til að minnast uppreisnarinnar á Stonewall 30 árum áður.[1]Heimir Már Pétursson hafði síðan forgöngu um að ári síðar í ágúst 2000 var farið í fyrstu Pride Parade gönguna í Reykjavík, sem hlaut hið íslenska nafn gleðiganga og var hluti af þriggja daga hátíðarhöldum Hinsegin daga í Reykjavík. Hinsegin dagar höfðu þá verið stofnaðir sem sjálfstætt óháð félag undir forystu Heimis og Þorvaldar Kristinssonar. Áður höfðu þó verið farnar göngur í Reykjavík þar sem krafist var janfréttis, svokallaðar frelsisgöngur hommar og lesbía árin 1993 og 1994.[2] Hin fyrsta gleðiganga í Reykjavík gekk vonum framar en Heimir og Þorvaldur hafa lýst því í viðtölum að allt að 12.000 gestir hafi þá mætt í miðborgina.[3] Frá þeim tíma hafa Hinsegin dagar í Reykjavík verið haldnir árlega í borginni, dagskrá hátíðarinnar lengst og viðburðum fjölgað en Hinsegin dagar eru í dag stærsta árlega hátíð landsins en um og yfir 100.000 gestir[4] hafa sótt miðborgina á undanförnum árum þegar gleðigangan fer fram og Hinsegin dagar ná hámarki.
Forsvarsfólk Hinsegin daga í Reykjavík
Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga frá árinu 2023[5]
Gunnlaugur Bragi Björnsson, formaður Hinsegin daga 2021-2023
Ásgeir Helgi Magnússon, formaður Hinsegin daga 2020-2021
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, formaður Hinsegin daga 2020
Gunnlaugur Bragi Björnsson, formaður Hinsegin daga 2018-2020
Eva María Þórarinsdóttir Lange, formaður Hinsegin daga 2012-2018
Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri Hinsegin daga 1999-2011
Þorvaldur Kristinsson, forseti Hinsegin daga 1999-2012