Gyðingahatur er andúð, fordómar, mismunun og ofsóknir á hendur Gyðingum sem þjóð, þjóðfélagshóp, trúfélagi eða kynþætti. Nasismi var stjórnmálastefna, sem grundvallaðist á gyðingahatri og stefndi að útrýmingu gyðinga. Helförin var skipulögð tilraun til þess að hrinda þeirri stefnu í framkvæmd.
Judenhass (Gyðingahatur) var notað fyrst af þýskum vísindamönnum árið 1873 til að lýsa slíku hatri. Ásakanir í garð gyðinga hafa verið alt frá að bera svarta dauða til landsins og bera undirróður gegn kristinni til að bendla þá við kommúnismann og stórglæpi hans og reka skipulagða brotastarfsemi.