Fyrir ofan himininn er önnur breiðskífa íslensku rokksveitarinnar Sign og kom hún út árið 2002. Platan var tekin upp í Rabbeyroad, hljóðveri í eigu Rafns Jónssonar föður tveggja meðlima Sign þeirra Ragnars Zolberg og Egils. Meðlimir Sign á þessum tíma og koma fram á plötunni eru Ragnar Sólberg Rafnsson (söngur, gítar, hljómborð og fleira), Baldvin Freyr (Gítar), Sigurður Ágúst (Bassi) og Egill Örn Rafnsson (Trommur).
Lagalisti
- Aldrei Aftur (4:27)
- Sólin Skín - í síðasta skipti (5:09)
- Eichvað (3:56)
- Innri Skuginn (5:44)
- Rauða Ljósið (4.36)
- Fyrir Ofan Himininn (4:37)
- Augun (3:52)
- Ég leitaði (4:35)
- Heim (4:26)
- Lengst Inni (4:37)
- Líkaminn Þinn (5:28)
- Ég Fylgi þér (4:45)