Fjallabláklukka (fræðiheiti: Campanula uniflora) er lítil fjölær jurt sem ber aðeins eitt blátt blóm á hverjum stilk. Hún er algeng á norðurslóðum þar sem hún vex í kalkríkum jarðvegi til fjalla.
Á Íslandi er fjallabláklukka fremur sjaldséð og algengust í fjallshlíðum við Eyjafjörð.
Á heimsvísu er hún er útbreidd í norðanverðri Norður-Ameríku, þ.m.t. Klettafjöllum og Grænlandi, Asíumegin við Beringshaf og á Íslandi, Svalbarða, fjöllum Skandinavíu og Novaja Zemlja.
Tegundin var fyrst uppgötvuð af Linnaeus í leiðangri hans til Lapplands árið 1732 og segir frá henni í bók sinni Flora Lapponica (1737).[1]
Samlífi
Á Íslandi vex niðurbrotssveppurinn grasmúrgróungur (Pleospora herbarum) á dauðum vefjum ýmissa plöntutegunda,[2] meðal annars á fjallabláklukku.[3]
Heimildir