- Getur líka átt við djúpbátinn Fagranes.
Fagranes er bær á Reykjaströnd í Skagafirði, austan undir Tindastól. Þar var áður kirkjustaður og prestssetur en kirkjan var lögð niður 1892 og prestssetrið flutt til Sauðárkróks. Í kirkjunni var forn prédikunarstóll, talinn frá dögum Guðbrands Þorlákssonar biskups. Hann er nú í Þjóðminjasafni.
Á Fagranesi býr nú Jón Eiríksson sem kallaður er Drangeyjarjarl og hefur lengi nytjað Drangey og viðhaldið lendingaraðstöðu þar. Hann stundar siglingar með ferðamenn til eyjarinnar og hefur byggt upp lendingaraðstöðu á Reykjum. Hann stóð líka fyrir uppbyggingu Grettislaugar á Reykjum 1992. Á Fagranesi er minnisvarði um Gretti sterka Ásmundarson, sem sagður er hafa verið grafinn í kirkjugarðinum þar - það er að segja skrokkurinn, hausinn hafði Þorbjörn öngull með sér á brott.
Heimildir