Eldey (eins og hún var alltaf kölluð) ólst upp í Merkinesi í Höfnum á Reykjanesskaga, næst elst meðal fjögurra bræðra, þeirra Sigurjóns, Þórodds, Marons Guðmanns og Vilhjálms Hólmars. Foreldrar þeirra voru hjónin Vilhjálmur Hinrik Ívarsson og Hólmfríður Oddsdóttir. Þegar Eldey hafði slitið barnsskónum fór hún í Héraðsskólann á Laugarvatni þar sem hún átti góða daga og þar fékk hún gælunafnið „Elly“. Að námi loknu lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hún fékk vinnu sem vélritunarstúlka. Jafnframt vinnunni sótti hún leiklistarnámskeið hjá Ævari Kvaran. Þegar hún sá auglýsingu í blaði „söngkona óskast“, skellti hún sér í prufu og áður en hún vissi af var hún orðin dægurlagasöngkona. Draumurinn rættist og hún sló í gegn sem söngkona með Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar. Bjarni (faðir Ragnars Bjarnasonar söngvara) var með vikulega útvarpsþætti í Ríkisútvarpinu þar sem hann kynnti þessa einstæðu rödd. Raddbeitingin og túlkunin var á þann veg að þjóðin heillaðist.
Elly söng inn á tvær sólóplötur á ferlinum. Sú fyrri var LP-platan Lög úr söngleikjum og kvikmyndum sem kom út hjá SG-hljómplötum 1966. Hin LP-platan var jólaplatan Jólafrí sem Skífan gaf út 1988. Segja má að plötuferill Ellyjar hafi verið frekar stuttur, miðað við frægð hennar og vinsældir, allt fram að andlátinu 1995. Sérstæðasta verkið á ferlinum er ef til vill lagið „Sveitin milli sanda“ eftir Magnús Blöndal Jóhannsson, þar sem hún syngur „Aaaaa...“ þar sem enginn texti var ortur við lagið.
Útgefið efni
Íslenskir Tónar
45 snúninga
45-2010 - Elly Vilhjálms - Ég vil fara upp í sveit // Kveðju sendir blærinn - 1960
H.S.H
45 snúninga
HSH45-1014 - Elly Vilhjálms - Lítill fugl // Sjötíu og níu af stöðinni - 1963
HSH45-1024 - Elly Vilhjálms og KK Sextettinn - Sjötíu og níu af stöðinni / Lítill fugl // Ó María / Kvöldljóð - 1963
Fálkinn
45 snúninga
DK 1621 - Elly Vilhjálms - Í grænum mó // Sumarauki - 1964