Dáríulerki er meðalstór sumargræntbarrtré sem er 10 - 30 m hátt og getur ummál trábols náð 1 me.
Tegundir af Dáríulerki eru
Larix gmelinii var. gmelinii
Larix gmelinii var. japonica
Larix gmelinii var. olgensis
Dáríulerki myndar stóra skóga í austur Síberíu og vex í 50-1,200 m hæð í grunnum jarðvegi fyrir ofan sífreri. Dáríulerki er það tré sem vex nyrst í heiminum (73°N) og það tré í heiminum sem þolir mestan kulda. Fundist hefur tré í Jakútíu sem er 919 ára gamalt. Erfitt hefur reynst að rækta daríulerki á syðri breiddargráðum þar sem það er aðlagað mjög löngum vetrardvala. Í heimkynnum þess er frost alveg þangað til seinast í maí eða júní og ekkert frost svo aftur þangað til sumri lýkur.