Þeir gáfu út diskinn Tónlist til að slást við sem seldist ágætlega.[2] Frægasta lagið á disknum var Í Klúbbnum og var myndbandið við lagið mikið spilað. Einnig þótti titillag plötunnar vera afar gott. Báðir rapparar sveitarinnar hafa unnið rímnastríð og tvisvar sinnum mæst í úrslitum. Dóri DNA hefur unnið keppnina tvisvar en Kájoð einu sinni. Þeir þykja með betri frjálsrímurum Íslands.
Allir meðlimir Bæjarins Bestu hafa tekið þátt í Morfís og komst Halldór í úrslit með MH en Kjartan tók þátt fyrir hönd FG meðan Daníel tók þátt fyrir MS.