Anna Pálína Árnadóttir (9. mars 1963 – 30. október 2004)[1] var íslensk vísnasöngkona og dagskrárgerðarmaður. Meðal þekktra verka eftir hana er barnaplatan „Berrössuð á tánum“ frá 1998 sem hún gaf út með eigimanni sínum Aðalsteini Ásberg.[2]
Frá fyrri hluta 10. aldar dagskrárgerðarmaður í útvarpi og voru þættir hennar oft um vísnatónlist eða barnaþættir.[3]
Hún átti útgáfufyrirtækið Dimmu með manninum sínum.[3] Þau gáfu út djass, sálma, vísnatónlist, og barnatónlist.[2] Önnu var sérlega annt um vísnatónlist og flutti lög víða.[3] Hún var formaður félagsins Vísnavina.[1]
Hún greindist með brjóstakrabbameini 1999.[4] Árið 2004, sama ár og hún lést, gaf hún út bókina Ótuktina þar sem hún fjallaði um lífið með krabbamein.[5] Þar persónugerði hún krabbameinið sem „Kröbbu frænku“.[5] Ótuktin var sett upp sem einleikur með söngvum árið 2011, lögin samdi maðurinn hennar.[6]
1998 – Berrössuð á tánum (ásamt Aðalsteini Ásberg). Barnaplata.[2] Fyrir plötuna hlutu þau viðurkenningu frá Íslandsdeild barnabókastofnunarinnar IBBY(en).[1]
1999 – Bláfuglinn
2000 – Bullutröll (ásamt Aðalsteini Ásberg). Barnaplata, framhald af „Berrössuð á tánum“.[2]