Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í San Sebastián (spænska: Festival Internacional de San Sebastián; Baskneska: Donostia Zinemaldia) er árleg kvikmyndahátíð haldin í spænsku borginni San Sebastián í Baskalandi á Spáni. Hátíðin, sem var stofnuð árið 1953, sýnir jafnan þverskurð af nýjum alþjóðlegum kvikmyndum, með sérstaka áherslu á fyrstu og aðrar myndir leikstjóra. Myndir í aðalkeppni keppa um Gullnu skelina.[1]
Tilvísanir
- ↑ „Alþjóðlegar kvikmyndahátíðir“. Kvikmyndamiðstöð Íslands. Sótt 21. mars 2023.