Jalaluddin Muhammad Akbar (persneska: جلال الدین محمد اکبر), oft nefndur Akbar mikli, (15. október1542 – 27. október1605) var keisariMógúlveldisins1556-1605 og er talinn mestur þeirra. Hann var meðal annars mikill stuðningsmaður lista og fræðistarfa og mikill talsmaður umburðarlyndis fólks af mismunandi trúarbrögðum, en í veldi hans bjuggu bæði hindúar og múslimar.