Jóskir bændur neituðu að greiða viðbótarskatta sem Eiríkur menved Danakonungur hafði lagt á þá og gerðu uppreisn. Þeir unnu sigur á herliði konungs við Kolding en síðan kom konungur með þýska málaliða, yfirbugaði bændurna, hengdi leiðtoga þeirra og sendi marga bændur í nauðungarvinnu.