Þorvaldur Davíð Kristjánsson |
---|
Fæddur | 27. september 1983 (1983-09-27) (41 árs) |
---|
Maki | Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir |
---|
Börn | 3 |
---|
Þorvaldur Davíð Kristjánsson (f. 27. september 1983) er íslenskur leikari.[1] Þorvaldur útskrifaðist árið 2011 með BFA-gráðu af leiklistarbraut frá Juilliard listaháskólanum (The Juilliard School) í New York í Bandaríkjunum.
[2] Þorvaldur stundaði að auki nám við Oxford háskóla í Bretlandi þar sem hann er ævimeðlimur í Balliol College.[3]
Þorvaldur hefur bæði verið tilnefndur og hlotið Edduna fyrir túlkun sína á hinum ýmsu hlutverkum í sjónvarpi og kvikmyndum í gegnum árin.[4] Hann hefur einnig tekið þátt í fjöldann öllum af leiksýningum og meðal annars hlotið Grímutilnefningu fyrir túlkun sína á Christoper Boon í Furðulegt háttalag hunds um nótt sem sett var upp í Borgarleikhúsinu.[5] Árið 2023 var Þorvaldur valinn sem einn af European Shooting Stars á Berlinale kvikmyndahátíðinni.[6] Að auki hefur hlotið hin ýmsu verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín á sviði leiklistar líkt og American Scandinavian Foundation Cultural Grant[7] og Tilnefningu sem Framúrskarandi ungur Íslendingur á vegum JCI samtakanna.[8]
Þorvaldur hefur gefið út þrjár barnabækur. Árið 2023 kom út fyrsta barnabókin hans í samvinnu við Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og heitir sú bók Sokkalabbarnir: Ný Veröld. Bókin er sú fyrsta í bókaflokknum um Sokkalabbanna. Tvær aðrar bækur í sama bókaflokki, Sóli fer á Ströndina og Grændís: Græn af öfund, komu út árið 2024. Bókaflokkurinn er ætlaður byrjendum í lestri.[9] Þorvaldur fékk handritastyrk frá Kvikmyndasjóði Ísland til að skrifa sjónvarpsþætti byggða á bókkaflokknum um Sokkalabbana.[10] Þættirnr eru nú í skrifum.
Þorvaldur býr í Laugardalnum í Reykjavík ásamt eiginkonu sinni og þremur börnum.
Ferill
Tilvísanir
Tenglar