Árni Þórarinsson 2015.
Árni Þórarinsson (f. 1. ágúst 1950 ) er íslenskur blaðamaður og rithöfundur sem er þekktastur fyrir kvikmynda- og tónlistargagnrýni sína í Morgunblaðinu og á síðari árum glæpasögur sínar. Árni skrifaði handrit að einum þætti þáttaraðarinnar Pressan sem var sýnd á Stöð 2 vorið 2008.
Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1970 og lauk BA prófi í samanburðarbókmenntum frá University of East Anglia í Norwich á Englandi árið 1973.[ 1]
Verk
1994 - Krummi: Hrafns saga Gunnlaugssonar - Viðtalsbók um Hrafn Gunnlaugsson .
1998 - Nóttin hefur þúsund augu - Fyrsta bókin um Einar blaðamann
2000 - Leyndardómar Reykjavíkur 2000 - Meðhöfundur
2000 - Hvíta kanínan - Önnur bókin um Einar blaðamann
2001 - Blátt tungl - Þriðja bókin um Einar blaðamann
2002 - Í upphafi var morðið - Skrifuð með Páli Kristni Pálssyni
2005 - Tími nornarinnar - Fjórða bókin um Einar blaðamann
2006 - Farþeginn - Skrifuð með Páli Kristni Pálssyni
2007 - Dauði trúðsins - Fimmta bókin um Einar blaðamann. Samnefnt útvarpsleikrit eftir Hjálmar Hjálmarsson var flutt í Ríkisútvarpinu sumarið 2008
2008 - Sjöundi sonurinn - Sjötta bókin um Einar blaðamann
2010 - Morgunengill - Sjöunda bókin um Einar blaðamann
2012 - Ár kattarins - Áttunda bókin um Einar blaðamann
2013 - Glæpurinn: Ástarsaga
2016 - 13 dagar [ 1]
Tenglar
Tilvísanir
↑ 1,0 1,1 Bokmenntaborgin.is, „Árni Þórarinsson“ (skoðað 6. febrúar 2021)