Það þarf að skrifa þessa grein út frá alþjóðlegu sjónarmiði. Vinsamlegast bættu greinina eða ræddu málið á spjallsíðunni.
Verkfall er skipulögð vinnustöðvun launafólks í fyrirtæki, starfsgrein(um) eða iðnaði til að ná fram til dæmis launahækkun eða bættum vinnuskilyrðum yfirleitt hjá starfsfólki sem fer í verkfall en stundum til að þrýsta á annarra vinnuveitendur, þá kallað "samúðarverkfall". Verkbann er samsvarandi vinnustöðvun að undirlagi atvinnurekenda. Verkföll urðu fyrst almennt notuð í réttindabaráttu launafólks í Iðnbyltingunni þegar þörf skapaðist fyrir mikið af vinnuafli í verksmiðjum.
Verkfall getur verið ótímabundið eða tímabundin aðgerð en þá jafnvel endurtekin, hugsanlega reglulega. Stundum neita starfsmenn að vinna yfirvinnu, sem er strangt til tekið ekki verkfall.
Dæmi um verkföll
Langvinn verkföll á Íslandi hafa t.d. átt sér stað í vinnudeilum kennara. Verkfall grunnskólakennara 2004 og 1995 stóðu í meira en mánuð.