Tónabúðin var hljóðfæra- og hljómplötuverslun sem stofnuð var 15. október 1966 á Akureyri. Það var Pálmi Stefánsson tónlistarmaður (Póló) sem stofnaði verslunina.
Sagan - Útgáfan
Í fyrstu seldi Tónabúðin mest hljómplötur og komu innfluttar plötur aðallega frá Bandaríkjunum, Svíþjóð og Noregi. Á þeim tíma hafði Sportvöru og hljóðfæraverslun Akureyrar samning við flesta innflytjendur hljómplatna og íslenska útgefendur um að þeir seldu ekki öðrum verslunum á Akureyri hljómplötur. Af þeirri ástæðu gekk Tónabúðinni illa að fá plötur til að selja.
Árið 1967 stofnar Tónabúðin svo útgáfu íslenskra hljómplatna á merkinu Tónaútgáfan. Fyrstu plöturnar voru með Póló og Bjarka og Póló og Erlu en svo er landið tekið með trompi og „Lifun“ Trúbrots kemur út á merki Tónabúðarinnar árið 1971. Ásamt hljómplötuútgáfunni seldi Tónabúðin hljóðfæri og hljómtæki en þegar Akureyringar ná útsendingum Sjónvarpsins 1968 verður Tónabúðin helsti söluaðili sjónvarps og myndbandstækja og verður leiðandi fyrirtæki í afþreyingargeiranum norðan heiða.
Margir vinsælustu listamennirnir af suðvesturhorninu koma út á plötum Tónaútgáfunnar svo sem Björgvin Halldórsson, Ragnar Bjarnason, Flowers, Ævintýri og fleiri. Þá brýtur Tónaútgáfan blað í útgáfu tónlistar með fyrstu íslensku safnplötunni „Pop Festival ´70“ sem kom út 1970, þar sem lögum með vinsælustu poppstjörnum dagsins safnað saman á eina stóra LP plötu, 33 snúninga.
Á þeim tíma hafði Jón Ármannsson gerst hluthafi í Tónaútgáfunni og sá hann aðallega um samskipti við popparana í Reykjavík og nágrenni. Jón seldi svo Tónabúðinni sinn hlut í Tónaútgáfunni nokkrum árum síðar og og flutti til Frakklands.
Síðasta hljómplata Tónaútgáfunnar kom út 1985 og um miðjan níunda áratuginn leggst hljómplötuútgáfan af þegar Tónabúðin selur útgáfurétt sinn til „Steinar hf“ (Sena í dag), en fyrirtækið heldur áfram starfsemi og sérhæfir sig í sölu hljóðfæra og tækjum þeim tengdum.
Upptökuver
Árið 1974 ákvað Tónabúðin að koma sér upp hljóðveri á Akureyri og var því komið fyrir í tveggja hæða húsi að Norðurgötu 2B en þar hafði áður verið reykhús.
Keypt voru tvö Revox segulbandstæki og sex rása hljóðmixer ásamt fylgihlutum og var þar hljóðritað efni sem gefið var út á nokkrum plötum Tónaútgáfunnar.
Pálmi Stefánsson
Á þrjátíu ára afmæli Tónabúðarinnar árið 1996 var þetta haft eftir Pálma Stefánssyni í viðtali í Morgunblaðinu:
Það skiptir miklu að fylgjast vel með öllum hræringum á þessum vettvangi og vera vakandi fyrir nýjungum.“
— Pálmi Stefánsson.
Útgefnar hljómplötur
45 snúninga
CBEP 24 - Póló Og Bjarki - Lási Skó / Vonin sem brást // Glókollur / Stígðu dans - 1967
GEOK 253 - Póló og Erla Stefánsdóttir - Ég bíð þín / Hin ljúfa þrá // Lóan er komin / Brimhljóð - 1967
T 125 - Erla Stefánsdóttir - Sannfæring // Ég skilið ei fæ - 1973
T 126 - Kór Barnaskóla Akureyrar - Á sunnudagsmorgna / Ef gangan er erfið / Ég svíf út í vorið // Enn er komið indælt vor / Stebbi / Vor í dalnum / Það glampar á fannir - 1973
T 127 - Hljómsveit Ingimars Eydal - Spánardraumar // Líttu inn - 1973
T 128 - Harpa Gunnarsdóttir - Ef allir væru eins / Elsku kisa mín // Ég syng hæ og hó / Það var einn sólríkan dag - 1975