Stóra-Laxá er þekkt laxveiðiá og þykir landslag í og við ána bæði fjölbreytt og mikilfenglegt en þar eru þekktust Laxárgljúfur sem hafa skorist djúpt í berggrunninn á hálendisbrúninni á afrétti Hrunamanna og Skeiða- og Gnúpverja. Berggrunnurinn er um 2 - 3 milljón ára gamall, þjappaður úr gjóskueldsumbrota á ísöld. Gljúfrin hafa myndast við það að Stóra-Laxá hefur undanfarin 10.000 ár, eða svo, grafið sig ofan í bergið. Gljúfrin eru um 10 kílómetra löng og víða 100 - 200 metra djúp frá innsta hlutanum að Hrunakrók sem er efst í Laxárdal. Áin er laxgeng langt inn í Laxárgljúfur.[3]
2012 sótti Landsvirkjun um rannsóknarleyfi vegna virkjunar í ánni en ósætti er um málið milli Orkustofnunar, stjórnvalda og veiðifélaga.[4] Í júlí sama ár veitti svo Orkustofnun Landsvirkjun rannsóknarleyfi vegna áætlana um virkjun í efri hluta vatnasviðs Stóru Laxár.[5]
Tilvísanir
↑„Stóra-Laxá“. Landsamband veiðifélaga. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. febrúar 2013. Sótt 26. júlí 2012.