Óbreyttir borgarar drepnir: Í Suður-Ossetíu: 162 samkvæmt Rússum;[2] a.m.k. 365 samkvæmt Suður-Ossetum;[3][4] 255 særðir samkvæmt Rússum[2]
Í Georgíu: 224 óbreyttir borgarar drepnir og 15 týndir, 547 særðir[5]
Stríð Rússlands og Georgíu var stríð sem háð var á milli Rússlands og Georgíu í ágúst árið 2008. Með Rússum börðust einnig aðskilnaðarsinnar í héruðunum Abkasíu og Suður-Ossetíu gegn Georgíumönnum. Stríðið hefur verið kallað fyrsta evrópska stríð 21. aldar.
Saga
Upptök stríðsins má rekja til deilna um stöðu héraðanna Abkasíu og Suður-Ossetíu innan Georgíu. Þegar Georgía var hluti af Sovétríkjunum voru þessi héruð skilgreind sem sjálfstjórnarhéruð innan georgíska sovétlýðveldisins. Þegar Georgía hlaut sjálfstæði frá Sovétríkjunum árið 1991 urðu héruðin hluti af nýja sjálfstæða lýðveldinu Georgíu, en Georgíumenn héldu ekki yfirráðum þar lengi. Suður-Ossetía lýsti yfir sjálfstæði árið 1991 og Abkasía sömuleiðis árið 1992. Sjálfstæðisyfirlýsing Abkasíu frá Georgíu leiddi til blóðugs stríðs sem lauk með því að Georgíumenn glötuðu að mestu yfirráðum yfir héraðinu og Abkasar hófu þjóðernishreinsanir gegn Georgíumönnum sem enn bjuggu þar. Héruðin hafa ráðið eigin ráðum frá tíunda áratuginum en eru þó skilgreind af meirihluta alþjóðasamfélagsins sem hluti af Georgíu. Eftir átök milli Georgíu og Suður-Ossetíu í byrjun tíunda áratugarins tóku Rússar að sér friðargæslu í Suður-Ossetíu.[6]
Í ágústbyrjun árið 2008 hófu aðskilnaðarsinnar í Suður-Ossetíu sprengjuárásir á georgísk þorp. Georgísk stjórnvöld brugðust við með því að senda herlið inn í Suður-Ossetíu og hertóku fljótlega borgina Tskhinvali, eitt af höfuðvígjum aðskilnaðarsinnanna. Eftir hernám Georgíumanna á bænum sökuðu Rússar Georgíumenn um tilefnislausa árás gegn Suður-Ossetíu og gerðu innrás í Georgíu þann 8. ágúst í því skyni að koma á friði. Rússar réttlættu inngrip sitt meðal annars með því að saka Georgíumenn um þjóðernishreinsanir gegn Suður-Ossetum og um að jafna suður-ossetíska bæi við jörðu.[7]
Rússneskir og georgískir hermenn börðust í nokkra daga í Suður-Ossetíu uns Georgíumenn voru reknir á flótta. Rússar réðust einnig inn í Georgíu sjálfa frá Abkasíu og af Svartahafi. Þann 12. ágúst sömdu Rússar og Georgíumenn um vopnahlé með milligöngu Nicolasar Sarkozy Frakklandsforseta, sem þá var í forsæti evrópska ráðsins.
Eftir stríðið viðurkenndi Dmítríj Medvedev Rússlandsforseti formlega sjálfstæði Abkasíu og Suður-Ossetíu.[8] Frá því að stríðinu lauk hefur Rússland haldið hernámsliði í bæði Abkasíu og Suður-Ossetíu.