Maria Callas (gríska: Μαρία Κάλλας, fædd 2. desember1923 – látin 16. september1977) var grísk sópransöngkona og er líklegast ein þekktasta óperusöngkona 20. aldar. Hún sameinaði bel canto-tæknina með mikilli dramatík. Hún var mjög hæfileikaríkur söngvari og þótti túlka Donizetti, Bellini og Rossini vel og einnig verk Verdis, Puccini og Wagner. Hún fékk viðurnefnið La Divina vegna guðdómlegra sönghæfileika sinna.