MARPOL 73/78, MARPOL-samningurinn eða Alþjóðasamningur um varnir gegn mengun frá skipum, 1973, með breytingum samkvæmt bókun 1978 frá 17.2.1978 er mikilvægur alþjóðlegur samningur um umhverfismál. Hann var saminn af Alþjóðasiglingamálastofnuninni. Tilgangur hans er að draga úr mengun í hafi, þar með talið sorpmengun, olíumengun og loftmengun.
Upphaflegi samningurinn var undirritaður 17. febrúar árið 1973. Núverandi samningur inniheldur einnig bókun frá 1978. Hann tók gildi 2. október 1983. Sex viðaukar eru við samninginn og þurfa aðildarríki að fullgilda þá sérstaklega. Árið 2022 höfðu 160 ríki undirritað samninginn með viðaukum I-II en síðan fækkar ríkjum sem undirritað hafa síðari viðauka. Ísland gerðist aðili að samningnum árið 1983 og fullgilti viðauka I og II 1985 og viðauka III og V árið 1989. Viðauki VI var fullgiltur 2018 og viðauki IV 2019.
Viðaukar
Viðauki
Efni
Gildistaka
Fjöldi aðildarríkja (2022)
Viðauki I
Varnir gegn mengun frá olíu og olíumenguðum vökvum
2. október 1983
160
Viðauki II
Varnir gegn mengun frá hættulegum vökvum sem fluttir eru með skipum
6. apríl 1987
160
Viðauki III
Varnir gegn mengun frá eiturefnum sem flutt eru með skipum