Liseberg er skemmtigarður (tívolí) í Gautaborg sem er borg á vesturströnd Svíþjóðar. Liseberg er stærsti skemmtigarður á Norðurlöndunum og opnaði þann 8. maí1923. Liseberg fékk nafn sitt frá hæðinni sem hann stendur á, en eigandi hennar nefndi hana eftur Lísu, eiginkonu sinni.
Balder
Balder er stærsti rússíbani á trégrind á Norðurlöndum og er það tæki garðsins sem dregið hefur að sér flesta gesti. Balder var tekinn í notkun árið 2003.
Atmosfear
Atmosfear er stærsti fallturn í Evrópu og var tekinn í notkun þann 24. apríl 2011. Hann er 110 m hár. Fyrr var turninn notaður sem útsýnisturn en þar sem hann laðaði ekki nógu marga gesti að sér var turninum breytt í fallturn.