KGB (rússneska: КГБ) er skammstöfun fyrir Комитет государственной безопасности, Komítet gosúdarstvennoj bezopasností eða Ríkisöryggisnefnd sem var opinbert nafn leyniþjónustuSovétríkjanna á tímum Kalda stríðsins frá 1954 til 1991.
Starfsmenn KGB voru alræmdir fyrir að beita ofbeldi til að ná markmiðum sínum. Helstu hlutverk KGB innan Sovétríkjanna var að halda kommúnistum við völd og að vernda leiðtoga flokksins. Skjalasöfn kommúnistaflokksins sýna fram á að yfir 480.000 manns hafi starfað fyrir KGB, 200.000 þeirra hafi verið staðsettir á landamærunum.[1]