„Kíví“ vísar hingað. Fyrir aðra notkun á orðinu, sjá Kíví (aðgreining).
Kíví (eða kívíávöxtur eða loðber)[1][2] er ber sem vex á kívífléttunni og skyldum klifurrunnum.
Kíví rekja uppruna sinn til Kína en voru ekki ræktuð til matar þar. Kívírækt hófst á Nýja Sjálandi í byrjun tuttugustu aldar. Frá Nýja Sjálandi voru kívíin síðan flutt til vesturlanda á sjötta áratug. Algengasta ræktunarafbrigðið í dag er „Hayward“.
Innflutningur kívíávaxta til Íslands hófst á 8. áratug 20. aldar.[2]