Ingibjörg Þorbergs syngur fyrir börnin |
---|
|
Bakhlið |
|
Flytjandi | Ingibjörg Þorbergs |
---|
Gefin út | 1959 |
---|
Stefna | Dægurlög |
---|
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
---|
Ingibjörg Þorbergs syngur fyrir börnin er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1959. Á henni syngur og leikur Ingibjörg Þorbergs fjögur barnalög. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Pressun: AS Nera í Osló. Prentun: Alþýðuprentsmiðjan.
Lagalisti
- Guttavísur - Lag - texti: Bellman - Stefán Jónsson
- Stjánavísur - Lag - texti: Ingibjörg Þorbergs - Stefán Jónsson
- Aravísur - Lag - texti: Ingibjörg Þorbergs - Stefán Jónsson - Hljóðdæmiⓘ
- Börnin við tjörnina - Lag og texti: Jenni Jónsson - Hljóðdæmiⓘ
Aravísur
Í viðtali við Ingibjörgu Þorbergs kemur fram að Tage Ammendrup hafi farið þess á leit við hana að hún gerði lag við Aravísur Stefáns Jónssonar.[1] Útkoman varð eitt vinsælasta barnalag síðustu aldar.
Heimild
- ↑ Morgunblaðið, 27. nóvember 2005, bls. 16.