Hellar voru áður fyrr notaðir sem mannabústaðir, og sjálfsagt verið fyrstu skýli mannsins fyrir veðri og vindum. Seinna með þróun mannkyns urðu hellar aðeins að skjóli fyrir skepnur, og jafnvel innréttaðir sem slíkir. Þó eru enn til hellar þar sem fólk býr. Í Kína er hellir sem nefnist Sjongdong (enska: Zhongdong) og þar hefst fólk við í húsum sem eru byggð í hellinum.